Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 24. júní 2019 10:20
Elvar Geir Magnússon
Formaðurinn minnir leikmenn ÍA á að sýna öðrum virðingu
Úr leik ÍA og HK.
Úr leik ÍA og HK.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
„Ég vil minna leikmenn á að þakka stuðningsmönnum fyrir stuðninginn þegar leikir tapast og að sýna andstæðingum okkar og dómurum ávallt virðingu auk allra starfsmanna og sjálfboðaliða sem koma að framkvæmd leikja," er meðal þess sem Magnús Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar ÍA ritar í pistli sem birtur er á kfia.is.

Eftir frábæra byrjun á sumrinu hefur ÍA tapað fjórum leikjum í röð en í Innkastinu sem kom inn í gærkvöldi var talað um að pirringur meðal leikmanna ÍA væri áberandi og að þeir þyrftu að finna gleðina aftur til að koma sér á beinu brautina.

„Látum tímabundinn mótvind þjappa ÍA fólki saman og munum að í mótvindi felast tækifæri ef rétt er haldið á spöðunum. Jafnvel stórar flugvélar taka á loft á móti vindi," segir í pistlinum en hann má sjá í heild hér að neðan.

Pistillinn í heild sinni:
Kæru vinir

Meistaraflokkar karla og kvenna í knattspyrnu hjá ÍA hafa byrjað keppnistímabilið 2019 af miklum krafti. Liðin hafa barist hetjulega á vellinum og leikmenn hafa öðlast mikla reynslu sem er mikilvægt veganesti í næstu leiki.

Sama má segja um þjálfarateymin sem hafa sýnt mikinn dugnað, metnað og fagmennsku. Staðreyndin er sú að bæði meistaraflokksliðin okkar eru í toppbaráttu í sínum deildum en sú barátta er hörð og það er skammt á milli hláturs og gráturs.

Þrátt fyrir velgengni þá hefur blásið á móti í síðustu leikjum hjá strákunum okkar í meistaraflokki eftir ótrúlega kraftmikla byrjun. Á þeim tímapunkti langar mig að hvetja alla stuðningsmenn ÍA að muna að ef lið þarf einhvern tímann á stuðningsmönnum að halda þá er það þegar á móti blæs.

Ég vil líka minna leikmenn á að þakka stuðningsmönnum fyrir stuðninginn þegar leikir tapast og að sýna andstæðingum okkar og dómurum ávallt virðingu auk allra starfsmanna og sjálfboðaliða sem koma að framkvæmd leikja. Án starfsmanna og sjálfboðaliða væru engir knattspyrnuleikir.

Látum tímabundinn mótvind þjappa ÍA fólki saman og munum að í mótvindi felast tækifæri ef rétt er haldið á spöðunum. Jafnvel stórar flugvélar taka á loft á móti vindi.

Verum gul og glöð, áfram ÍA !

Magnús Guðmundsson
formaður Knattspyrnufélags ÍA



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner