Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   mán 28. desember 2020 18:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rodgers: Vardy getur ekki spilað allar mínútur
Vardy byrjaði ekki en Barnes skoraði.
Vardy byrjaði ekki en Barnes skoraði.
Mynd: Getty Images
„Ef við hefðum fengið markið úr vítaspyrnunni hefði það gefið okkur ákveðna fótfestu í leiknum," sagði Brendan Rodgers, stjóri Leicester, eftir 1-1 jafntefli gegn Crystal Palace í dag.

„Ég er mjög ánæðgur hvernig við komum til baka eftir markið og hraðinn í leik liðsins var mjög góður. Við erum eftir leikinn pirraðir að hafa ekki unnið. Samheldnin í leik liðsins var í lagi þrátt fyrir breytingar á byrjunarliði."

Rodgers gerði sjö breytingar frá leiknum gegn Manchester United á laugardag. Jamie Vardy var á meðal varamanna í dag.

„Þú getur ekki spilað Jamie Vardy og nokkrum öðrum allar mínútúr. Barnes er að þróast mjög vel, frábærlega klárað í markinu. Hann hefur verið mikil ógn í okkar leik á þessu tímabili."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner