Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   þri 07. maí 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea reynir að kaupa framtíðarstjörnu frá Brasilíu
Estevao.
Estevao.
Mynd: Getty Images
Chelsea er í viðræðum um að kaupa Estevao, 17 ára gamlan Brasilíumann frá Palmeiras.

Það er The Athletic sem greinir frá þessu.

Chelsea hefur trú á því að félagið geti gengið frá kaupunum en það myndi þýða að Estevao komi til félagsins eftir að hann verður 18 ára í apríl 2025.

Palmeiras vill fá 30 milljónir evra fyrir þennan efnilega leikmann, og félagið vill fá bónustengdar greiðslur.

Estevao er framherji sem spilaði sinn fyrsta leik með aðalliði Palmeiras í fyrra. Hann hefur einnig vakið athygli með unglingalandsliðum Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner