„Ég vil setja þetta í hóp með furðulegustu landsliðsvölum sem ég hef séð. Ég bara skil þetta ekki, án þess að vilja vera leiðinlegur," sagði Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.
Hann og Elvar Geir Magnússon furðuðu sig á valinu á Andrési Má Jóhannessyni, leikmanni Fylkis, í landsliðsverkefnin í Abu Dhabi í komandi viku.
Leiknir verða vináttulandsleikir gegn Finnlandi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum en ekki er um opinbera landsleikjadaga að ræða.
Adam Örn Arnarson, hægri bakvörður U21 landsliðsins og Nordsjælland, hefði frekar átt að fá tækifærið að mati Tómasar og Elvars.
Umræðuna má heyra í spilaranum hér að ofan en þar var rætt um hvert væri sterkasta mögulega byrjunarliðið úr hópnum sem valinn var.
Sjá einnig:
Hlustaðu á útvarpsþátt dagsins í heild
Athugasemdir