Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fös 05. febrúar 2016 16:15
Elvar Geir Magnússon
Eddie Howe: Boruc einn heitasti markvörður Evrópu
Artur Boruc.
Artur Boruc.
Mynd: Getty Images
Eddie Howe, stjóri Bournemouth, segir að það sé erfitt að finna betri markvörð í augnablikinu en Artur Boruc miðað við formið sem Pólverjinn er í.

„Sama hvar þú leitar," segir Howe.

„Þú þarft markvörð sem tekur vörslur og vinnur stig og það hefur Artur gert síðustu vikur," segir Howe en þessi 35 ára pólski landsliðsmarkvörður hefur haldið marki sínu hreinu þrisvar síðustu sjö leiki.

Hann hefur hjálpað Bournemouth að komast sjö stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner