„Ég er alveg í skýjunum," sagði Ingibjörg Sigurðardóttir, varnarmaður Íslands, eftir 3-0 sigur gegn Póllandi í fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Pólland
„Við gerðum allt sem við vorum búnar að ákveða að gera, og við gerðum það mjög vel. Við erum mjög sáttar."
Það var mikið talað um Ewa Pajor, sóknarmann Póllands, fyrir leikinn en hún er markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar. Ingibjörg og Glódís Perla Viggósdóttir voru með hana í góðri gæslu.
„Hún átti eitt gott færi í byrjun en Fanney gerði mjög vel. Annars fannst mér við ná þessu frekar vel, að halda henni niðri."
„Mér fannst flott hjá liðinu að bakka ekki of mikið niður eftir fyrsta markið. Við héldum áfram að setja pressu og tókum okkar færi. Það var rosalega mikilvægt að ná þessum mörkum fyrir hálfleik."
„Ég held að við getum tekið alveg ótrúlega margt jákvætt út úr þessu," sagði Ingibjörg en Fanney Inga Birkisdóttir var í markinu í dag og leysti það frábærlega. Fanney er nýorðin 19 ára gömul en það er óhætt að segja að hún spili eins og hún sé eldri.
„Er hún bara 19 ára? Já okei. Það er mjög gott að spila með henni, hún talar mjög mikið og er góð að taka ákvarðanir. Ég er mjög ánægð með hana."
Hægt er að sjá viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir