Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   mán 08. apríl 2024 09:23
Elvar Geir Magnússon
Chopart fær markið skráð á sig
Kennie Chopart fagnar markinu.
Kennie Chopart fagnar markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram vann 2-0 sigur gegn Vestra í 1. umferð Bestu deildarinnar í gær. Fred og Kennie Chopart skoruðu mörkin.

Fjölmiðlar skráðu seinna markið sem sjálfsmark Eiðs Arons Sigurbjörnssonar, varnarmanns Vestra, í textalýsingum en boltinn breytti um stefnu af honum og endaði í netinu.

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari leiksins telur að boltinn hafi upphaflega verið á leið á markið frá Kennie Chopart því hann skráir markið á þann danska í formlegri skýrslu leiksins.

Chopart fylgdi Rúnari Kristinssyni frá KR í vetur og byrjar vel í bláa búningnum. Hann var valinn maður leiksins í gær.

„Kennie var að spila sem hægri hafsent í þriggja manna vörn. Hann var virkilega flottur varnarlega og steig mikið upp úr vörninni til að taka þátt í spilinu og kom mikið upp kantinn og var hættulegur í sóknarleiknum," skrifaði Haraldur Örn Haraldsson fréttamaður Fótbolta.net í skýrslu sína.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  0 Vestri


Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 4 4 0 0 11 - 3 +8 12
2.    Breiðablik 4 3 0 1 10 - 6 +4 9
3.    FH 4 3 0 1 7 - 5 +2 9
4.    ÍA 4 2 0 2 10 - 5 +5 6
5.    Fram 3 2 0 1 3 - 1 +2 6
6.    KR 4 2 0 2 9 - 8 +1 6
7.    Vestri 4 2 0 2 2 - 6 -4 6
8.    Valur 3 1 1 1 2 - 1 +1 4
9.    Stjarnan 3 1 0 2 2 - 5 -3 3
10.    KA 4 0 1 3 5 - 9 -4 1
11.    Fylkir 3 0 1 2 4 - 9 -5 1
12.    HK 4 0 1 3 1 - 8 -7 1
Athugasemdir
banner
banner