Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mið 24. október 2018 06:00
Elvar Geir Magnússon
Leikmenn skrifa undir hjá Sindra
Mynd: Sindri
Sindri frá Höfn í Hornafirði hefur verið að semja við leikmenn fyrir næsta tímabil. Þjálfaramál eru enn í vinnslu en Sindramenn höfnuðu í 9. sæti 3. deildar í sumar.

Þeir halda sæti sínu í deildinni en fjölgun verður á næsta tímabili.

Varnarmennirnir Robertas Freidgeimas, Mate Paponja, Þorlákur Helgi Pálmason og Kristófer Daði Kristjánsson, markvörðurinn Róbert Marwin Gunnarsson, miðjumaðurinn Sigursteinn Már Hafsteinsson og sóknarmaðurinn Kristófer Hernandez hafa allir skrifað undir.

Í kvennaflokki hefur markvörðurinn Hulda Björg Sigurðsdóttir skrifað undir nýjan samning við Sindra. Sindrakonur féllu úr Inkasso-deildinni í sumar.

Nánar á aðdáendasíðu Sindra á Facebook.
Athugasemdir
banner
banner
banner