Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Davíð Smári: Menn labba ekki nægilega gíraðir inn í seinni hálfleikinn
Heimir: FH liðið er besta liðið í deildinni í að koma til baka
Andri Rúnar: Eftir jöfnunarmarkið vöknum við ekki aftur til lífsins
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
banner
   mið 19. júní 2019 22:38
Hilmar Jökull Stefánsson
Þórhallur: Skrýtið að það kom ekki kort á loft
Þórhallur Siggeirsson, þjálfari Þróttar
Þórhallur Siggeirsson, þjálfari Þróttar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhallur þjálfari Þróttara var að vonum svekktur eftir tapið í kvöld.

„Gríðarlega svekkjandi að hafa tapað þessum leik, tvö sterk lið að mætast og þetta var stál í stál oft á tíðum inni á vellinum og menn mikið að kljást og mikil barátta inni á vellinum.“

Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  1 Fjölnir

Þórhallur gerði breytingu á liði sínu undir lok leiks sem sætti mikilli furðu þar sem að Páll Olgeir var tekinn út af eftir að hafa komið inn á fyrr í leiknum.

„Ég set Pál Olgeir inn á af því að augljóslega var Aron meiddur og við þurftum að bregðast við og undir lok leiks tók ég Palla út af því við vorum að skipta um kerfi og setja tvo framherja.“

Spurður hvort Aron Þórður væri í lagi sagði Þórhallur:

„Nei þetta er bara slæm staða enda virkaði þetta ljót tækling af bekknum og skrýtið að það kom ekki einu sinni kort á loft en næstu dagar fara í það að skoða hvernig ástandið á honum er.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner