„Úrslitin eru afleiðing þeirra góðu frammistöðu sem við átttum," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City, í viðtali við Tómas Þór Þórðarson á Síminn Sport eftir 4-1 sigur á Burnley í kvöld.
„Við spiluðum mjög vel. Ég er ánægður með það hvernig við sendum boltann, við sendum boltann oftar en venjulega og þess vegna er ég ótrúlega ánægður."
Næsti leikur er gegn Manchester United í nágrannaslag á laugardaginn.
„Á morgun ætlum við að horfa á leikinn þeirra gegn Tottenham og reyna að greina þá."
Viðtalið er í heild sinni hér að neðan, en einnig má sjá frá því þegar Tómas og Freyr Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, greindu leikinn.
Pep var glaður en ekkert sérstaklega málglaður í viðtali við @tomthordarson á Síminn SPort eftir sigurinn gegn Burnley í kvöld pic.twitter.com/7YIwDuginQ
— Síminn (@siminn) December 3, 2019
"Dyche verður að hætta að tala um þetta og fara að hirða einhver stig af toppliðunum," sagði aðstoðarlandsliðsþjálfarinn @freyrale í uppgjöri með @tomthordarson eftir 4-1 sigur City á Burnley í kvöld á Síminn Sport. pic.twitter.com/RVUVWCBi0J
— Síminn (@siminn) December 3, 2019
Athugasemdir