VAR verður notað í umspilsleikjunum fyrir EM í mars næstkomandi en þetta var samþykkt í dag.
Það verður því VAR á Laugardalsvelli þann 26. mars þegar Ísland mætir Rúmeníu í umspilinu.
Sigurliðið mætir annað hvort Ungverjalandi eða Búlgaríu í hreinum úrslitaleik um að komast á EM og í þeim leik verður VAR einnig notað.

VAR var notað á HM í Rússlandi í fyrra og Ísland fékk meðal annars vítaspyrnu gegn Nígeríu eftir að brot á Alfreð Finnbogasyni var skoðað á myndbandsupptöku.
VAR var ekki notað í undankeppni EM en tæknin verður notuð á EM næsta sumar.
Athugasemdir