Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25113 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR19.07.2025, 09:00

Botafogo kaupir Danilo frá Forest (Staðfest)

Brasilíski miðjumaðurinn Danilo er genginn til liðs við Botafogo frá Nottingham Forest. Hann skrifar undir fjögurra ára samning og Botafogo borgar 16 milljónir punda fyrir hann.

FRÉTTIR18.07.2025, 21:38

Longstaff til Leeds (Staðfest)

Leeds hefur staðfest kaupin á Sean Longstaff frá Newcastle. Sky Sports segir að kaupverðið sé um 12 miilljónir punda og hann skrifar undir fjögurra ára samning við Leeds.

FRÉTTIR18.07.2025, 19:30

Irankunda til Watford (Staðfest) - Bayern fær helming af næstu sölu

Watford hefur staðfest kaup á Nestory Irankunda frá Bayern Munchen. Watford borgar 2,5 milljón punda og hann skrifar undir fimm ára samning. Irankunda er 19 ára gamall ástralskur vængmaður. Hann gekk til liðs við Bayern frá Adelaide í heimalandinu í fyrra en náði ekki að spila leik fyrir aðalliðið.

FRÉTTIR18.07.2025, 19:00

Hektor Bergmann til Ólafsvíkur (Staðfest)

Víkingur í Ólafsvík hefur fengið Hektor Bergmann Garðarsson á láni frá ÍA út tímabilið. Hektor kemur í raun frá Kára, venslaliði ÍA, þar sem hann var á láni fyrri hluta tímabilsins og skoraði átta mörk í átján leikjum í öllum keppnum.

FRÉTTIR18.07.2025, 17:30

Como kaupir Perrone frá City (Staðfest)

ítalska félagið Como hefur keypt argentínska miðjumanninn Máximo Perrone frá Manchester City. Þessi 22 ára leikmaður lék með Como á lánssamningi frá City á síðasta tímabili.

FRÉTTIR18.07.2025, 16:15

Noni Madueke til Arsenal (Staðfest)

Arsenal hefur gengið frá kaupum á enska kantmanninum Noni Madueke en félagið greiðir um 50 milljónir punda til að fá hann frá grönnum sínum í Chelsea. Madueke er 23 ára og er uppalinn hjá Crystal Palace og Tottenham. Hann fór ungur að árum til PSV og hóf þar sinn meistaraflokksferil. Hann var keyptur til Chelsea 2023 og skoraði 20 mörk í öllum keppnum í 92 leikjum á tveimur og hálfu tímabili hjá félaginu. Þar sem hann var á HM félagsliða með Chelsea mun hann ekki koma til móts við leikmannahópinn fyrr en í ágúst og fer því ekki til Asíu í æfingaferð liðsins.

FRÉTTIR18.07.2025, 15:34

Fyrsti leikur KR á nýjum Meistaravöllum verður gegn Blikum (Staðfest)

Undanfarna mánuði hafa staðið yfir framkvæmdir á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur, heimavelli KR. KR fer úr því að vera með náttúrulegt gras á heimavelli sínum í gervigras. Búið er að leggja gervigras á Meistaravelli og er búið að staðfesta að leikur liðsins gegn Breiðabliki verði spilaður á nýja gervigrasinu eftir átta daga. Það var gert með færslu á samfélagsmiðlum KR.

FRÉTTIR18.07.2025, 15:00

Guðrún til Braga (Staðfest) - Nýtt andlit kvennaliðsins

Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir er orðin leikmaður Braga í Portúgal. Hún kemur þangað eftir að hafa leikið fyrir sænska félagið Rosengård síðustu fjögur árin. <i>„Risastór viðbót við kvennalið Braga,"</I> segir í tilkynningu frá félaginu sem er eitt það stærsta í Portúgal.

FRÉTTIR18.07.2025, 14:02

Daði Berg snýr aftur í Víking (Staðfest)

Víkingur Reykjavík hefur kallað Daða Berg Jónsson til baka úr láni frá Vestra. Daði Berg kom á láni til Vestra frá Víkingi fyrir tímabilið og hefur staðið sig frábærlega. Hann hefur verið einn af betri leikmönnum Bestu deildarinnar.

FRÉTTIR18.07.2025, 11:19

Grindavík fær Rúrik frá HK og Hollending sem var hjá Jóa Kalla (Staðfest)

Grindavík í Lengjudeildinni er búið að þétta raðirnar og styrkja leikmannahópinn fyrir síðustu tíu umferðirnar í deildinni. Rúrik Gunnarsson er kominn á láni frá HK út tímabilið og er kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Selfossi í kvöld. Rúrik er tvítugur fjölhæfur leikmaður; getur bæði spilað á miðju og í vörninni. Hann var keyptur til HK frá KR í vetur. Hann kom einungis við sögu í tveimur leikjum með HK fyrri hluta tímabilsins.

FRÉTTIR18.07.2025, 10:30

Guðrún yfirgefur Rosengård (Staðfest) - Á leið til Portúgals?

Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir hefur ákveðið að yfirgefa sænska félagið Rosengård. Samningur hennar rann út á dögunum en Rosengård staðfestir í dag að hún sé farin frá félaginu. Guðrún átti frábæran tíma hjá Rosengård en hún lék fyrir félagið í fjögur tímabil og spilaði þar meira en 150 leiki.

FRÉTTIR18.07.2025, 09:25

Oliver Stefánsson seldur í pólsku B-deildina (Staðfest)

ÍA hefur selt Oliver Stefánsson til pólska félagsins GKS Tychy í Póllandi. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum ÍA. GKS Tychy spilar í næst efstu deild Póllands og er félagið búið að krækja í varnarmanninn sem er 22 ára. Oliver átti innan við hálft ár eftir af samningi sínum við ÍA. Hann er uppalinn Skagamaður sem fór ungur út til Svíþjóðar og var hjá Norrköping á árunum 2019-2023. Hann lék á láni með ÍA tímabilið 2022, samdi svo við Breiðablik fyrir 2023 og sneri svo aftur heim á Akranes fyrir síðasta tímabil og hefur verið í lykilhlutverki í liði Skagamanna.

FRÉTTIR18.07.2025, 09:03

Birnir Snær í KA (Staðfest)

Birnir Snær Ingason er genginn í raðir KA. Hann kemur á samningi út þetta tímabil, kemur frá sænska félaginu Halmstad. KA birti myndband á <i>X</I> reikningi sínum klukkan 09:00 í dag, en þeirri færslu var svo eytt. Ný færsla birtist 09:16. Birnir hefur einungis komið við sögu í fimm leikjum á þessu tímabili og spilaði síðast 10. maí með Halmstad. Hann er 28 ára skapandi sóknarmaður sem var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins tímabilið 2023 þegar hann lék með Víkingi. Á Íslandi hefur Birnir leikið með uppeldisfélaginu Fjölni, Val, HK og Víkingi. Hjá KA hittir hann fyrir Hans Viktor Guðmundsson en þeir léku saman hjá Fjölni. Næsti leikur KA, sem er í harðrir fallbaráttu, er gegn ÍA á Greifavellinum á morgun. Í kjölfarið spila svo bikarmeistararnir í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni, mætir þar danska liðinu Silkeborg.

FRÉTTIR18.07.2025, 06:00

Víðir fær tvo Spánverja (Staðfest)

Víðir Garði er í slæmri stöðu á botni 2. deildar karla og er búinn að styrkja sig með tveimur nýjum leikmönnum á opnunardegi íslenska félagaskiptagluggans.

FRÉTTIR17.07.2025, 19:40

Thiago Almada til Atlético (Staðfest)

Spænska stórveldið Atlético Madrid heldur áfram að bæta leikmönnum við sig í sumar og er Thiago Almada kominn til Madrídar.

FRÉTTIR17.07.2025, 19:20

Banzuzi og Maksimovic komnir til Leipzig (Staðfest)

Þýska félagið RB Leipzig hefur verið í sókn í sumarglugganum og kynnti tvo nýja leikmenn til leiks á síðustu dögum. Annar þeirra er kantmaðurinn Johan Bakayoko sem var afar eftirsóttur og kemur úr röðum Hollandsmeistara PSV Eindhoven og hinn er Kosta Nedeljkovic sem kemur aftur á láni frá Aston Villa.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.