FRÉTTIR19.06.2025, 09:56
Íslenski markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson hefur verið kynntur hjá danska C-deildarfélaginu AB, sem kaupir hann frá Östersund.
Adam Ingi, sem er 22 ára gamall, gekk í raðir IFK Gautaborg árið 2019 frá HK. Hann spilaði 12 leiki á tíma sínum hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu, en gekk síðan í raðir Östersund á síðasta ári.
FRÉTTIR19.06.2025, 09:00
Argentínska goðsögnin Hernan Crespo er tekinn við brasilíska félaginu Sao Paulo í annað sinn en þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni.
FRÉTTIR19.06.2025, 06:00
Enska B-deildarfélagið Norwich City hefur klófest enska markvörðinn Louie Moluden á frjálsri sölu frá Crystal Palace.
FRÉTTIR18.06.2025, 19:34
Milos Milojevic er tekinn við Sharjah FC í úrvalsdeildinni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
FRÉTTIR18.06.2025, 19:04
Chris Wilder hefur verið rekinn úr starfi stjóra Sheffield United og er Ruben Selles tekinn við. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
FRÉTTIR18.06.2025, 13:00
Barcelona hefur staðfest kaup á markmanninum Joan Garcia sem kemur frá grönnunum frá Espanyol.
Barcelona virkjaði 25 milljóna evra riftunarákvæði í samningnum og Garcia var tilbúinn að koma.
Hann er 24 ára og hafði verið orðaður við bæði Arsenal og Aston Villa í sumar. Hann skrifar undir sex ára samning við spænsku meistarana.
FRÉTTIR17.06.2025, 17:20
Ítalska félagið Como er að vinna hörðum höndum að því að styrkja leikmannahópinn fyrir komandi átök í ítalska boltanum, eftir að hafa tekist að sannfæra Cesc Fábregas að vera áfram hjá félaginu.
FRÉTTIR17.06.2025, 13:30
Ítalska goðsögnin Filippo Inzaghi er tekinn við B-deildarliði Palermo, en þetta er annar Inzaghi-bróðirinn sem færir sig um set í þessum glugga.
FRÉTTIR17.06.2025, 11:09
Brighton hefur fest kaup á ítalska varnarmanninum Diego Coppola frá Hellas Verona.
FRÉTTIR17.06.2025, 07:00
Wrexham, sem er í eigu Hollywood leikarana Ryan Reynolds og Rob McElhenney er byrjað að styrkja sig fyrir baráttuna í Championship deildinni á næstu leiktíð.
Uppgangur liðsins hefur verið magnaður síðan félagarnir keyptu félagið árið 2020 en liðið hefur farið upp um þrjár deildir á þremur árum.
FRÉTTIR16.06.2025, 14:20
Bournemouth hefur gengið frá kaupum á franska varnarmanninum Adrien Truffert frá Rennes fyrir 14,4 milljónir punda.
FRÉTTIR16.06.2025, 11:03
Jón Þór Hauksson er hættur sem þjálfari ÍA. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar kemur fram að ákvörðunin hafi verið tekin í samráði milli Jóns Þórs og stjórnar félagsins.
Heimildir Fótbolta.net herma að Jóni Þór hafi verið sagt upp störfum.
ÍA er á botni Bestu deildarinnar með níu stig eftir ellefu umferðir. Síðasti leikur Jóns Þórs með liðið var gegn Aftureldingu í gær þar sem Afturelding vann 4-1 sigur eftir að ÍA hafði tekið forystuna.
Jón Þór var á sínu fjórða tímabili með liðið eftir að hafa tekið við fyrir tímabilið 2022. Liðið féll þð tímabil en fór aftur upp 2023 eftir erfiða byrun og mikinn viðsnúning. Á síðasta tímabili endaði liðið í 5. sæti eftir að hafa verið í harðri Evrópubaráttu fram að lokaleik tímabilsins.
Í tilkynningu félagsins kemur fram að stjórnin hafi hafið undirbúning að ráðningu nýs þjálfara og það verði tilkynnt um framhaldið þegar það liggur fyrir.
FRÉTTIR15.06.2025, 15:34
Þýski framherjinn Lukas Nmecha er genginn í raðir Leeds United á frjálsri sölu frá Wolfsburg.
FRÉTTIR15.06.2025, 14:00
Ítalska fótboltasambandið (FIGC) hefur ráðið Gennaro Ivan Gattuso í stöðu landsliðsþjálfara en þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu í dag.
FRÉTTIR15.06.2025, 10:24
Tottenham Hotspur hefur fest kaup á franska sóknarmanninum Mathys Tel frá Bayern München fyrir 30 milljónir punda.
FRÉTTIR14.06.2025, 12:41
Ólafur Valur Valdimarsson er 34 ára Skagamaður sem hefur ekki spilað síðan 2022 þegar hann lék tvo leiki með Kára.
Han á að baki 148 deildarleiki með ÍA á sínum ferli, og alls rúmlega 200 leiki fyrir félagið. Í aðdraganda leiks Kára gegn KFA í dag tilkynntu Skagamenn að Óli Valur hefði rifið fram skóna og ætli sér að spila með Kára í sumar.
Hann reyndar nær ekki leiknum í dag en sá leikur hefst 14:00 og fer fram í Akraneshöllinni.
Kári er í 11. sæti 2. deildar með sex stig eftir sjö leiki. Tvö stig og þrjú sæti eru upp í KFA sem er án sigurs í fimm leikjum.
FRÉTTIR14.06.2025, 11:00
Odilon Kossounou er genginn alfarið til liðs við Atalanta en hann var á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.
FRÉTTIR14.06.2025, 10:00
Napoli hefur nælt í efnilegan varnarmann frá Empoli. Sá heitir Luca Marianucci og er tvítugur.
Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, bauð hann velkominn til félagsins með skilaboðum á samfélagsmiðlinum X áður en félagið sjálft kynnti hann síðan formlega til leiks.
FRÉTTIR13.06.2025, 20:53
Igor Tudor, stjóri Juventus, hefur framlengt samning sinn við félagið en samningurinn er í gildi til ársins 2027 með möguleika á framlengingu um ár tilviðbótar.
FRÉTTIR13.06.2025, 19:00
Tom Cleverley hefur verið ráðinn þjálfari Plymouth sem leikur í ensku C-deildinni á næstu leiktíð eftir að liðið féll úr Championship deildinni á þeirri síðustu.
Hann skrifar undir þriggja ára samning.