Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25186 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR07.07.2023, 12:30

Ugarte til PSG (Staðfest)

Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain halda áfram að tilkynna um komu nýrra leikmanna fyrir komandi tímabil. Úrúgvæski landsliðsmaðurinn Manuel Ugarte er kominn frá Sporting Lissabon. Ugarte er 22 ára varnartengiliður sem var sterklega orðaður við Chelsea fyrr í sumar. Ugarte hefur skrifað undir samning til 2028. Fyrr í vikunni fékk PSG til sín spænska sóknarmanninn Marco Asensio frá Real Madrid og slóvakíska miðjumanninn Milan Skriniar frá PSG. Þá var ráðning á Luis Enrique staðfest.

FRÉTTIR07.07.2023, 12:12

Karólína Lea lánuð til Leverkusen (Staðfest)

Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur verið lánuð frá Bayern München til Bayer Leverkusen fyrir komandi tímabil. Karólína fór til Bayern í janúar 2021 og hefur leikið 34 leiki fyrir félagið. Hún þurfti að sætta sig við mikla bekkjarsetu hjá félaginu. Á heimasíðu Bayern München er henni óskað góðs gengis í lánsdvölinni og sagt að þessi 21 árs leikmaður muni öðlast mikilvæga reynslu í Bundesligunni.

FRÉTTIR07.07.2023, 07:30

Sverrir Ingi til Midtjylland (Staðfest)

Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur verið kynntur sem nýr leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Midtjylland. Hann mun klæðast treyju númer 15 á Jótlandi. „Sverrir er varnarmaður með alþjóðleg gæði og mikla reynslu. Við höfum verið að leita að leiðtogatýpu og hann uppfyllir það alla leið. Sverrir getur stýrt vörninni og er karakter sem gerir aðra í kringum sig betri," segi Svend Graversen, íþóttastjóri Midtjylland.

FRÉTTIR06.07.2023, 23:30

Dessers kominn til Rangers (Staðfest)

Rangers er búið að krækja í nígeríska framherjann Cyriel Dessers, sem skoraði 7 mörk í 29 leikjum er Cremonese endaði á botni ítölsku Serie A deildarinnar á síðustu leiktíð.

FRÉTTIR06.07.2023, 21:03

Frankfurt fær Koch frá Leeds (Staðfest)

Eintracht Frankfurt er búið að ganga frá lánssamningi við Leeds United til að tryggja sér þjónustu þýska miðvarðarins Robin Koch, sem á 8 leiki að baki fyrir landslið Þýskalands.

FRÉTTIR06.07.2023, 18:40

Ayoze Perez skiptir til Real Betis (Staðfest)

Real Betis er búið að staðfesta komu Ayoze Perez á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Leicester City rann út. Hann gerir fjögurra ára samning við spænska félagið.

FRÉTTIR06.07.2023, 18:20

Romero og Colombo til Milan (Staðfest)

AC Milan er búið að krækja í argentínska táninginn Luka Romero á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Lazio rann út.

FRÉTTIR06.07.2023, 16:41

Xhaka til Leverkusen (Staðfest)

Svissneski miðjumaðurinn Granit Xhaka er búinn að kveðja Arsenal til að skrifa undir hjá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

FRÉTTIR06.07.2023, 15:30

Atletico kynnir Azpilicueta (Staðfest)

Varnarmaðurinn reynslumikli Cesar Azpilicueta hefur formlega verið kynntur sem leikmaður Atletico Madrid. Þessi 33 ára leikmaður getur bæði leikið sem miðvörður og bakvörður en hann var fyrirliði Chelsea.

FRÉTTIR06.07.2023, 13:31

Arda Guler til Real Madrid (Staðfest)

Hinn átján ára gamli Arda Guler hefur gengið í raðir Real Madrid frá tyrkneska félaginu Fenerbahce. Hann hefur gert sex ára samning við Madrídarfélagið. Á morgun verður hann formlega kynntur fyrir stuðningsmönnum og hann mun svo sitja fyrir svörum á fréttamannafundi.

FRÉTTIR06.07.2023, 12:28

Asensio til PSG á frjálsri sölu (Staðfest)

PSG hefur opinberað Marco Asensio sem nýjan leikmann félagsins. Spænski sóknarmaðurinn kemur til PSG á frjálsri sölu frá Real Madrid. Samningur Asensio var að renna út og hefur hann nú yfirgefið spænsku höfuðborgina eftir níu ár og ógrynni af titlum hjá Real.

FRÉTTIR06.07.2023, 12:25

Castro nýr stjóri Ronaldo og félaga í Al-Nassr (Staðfest)

Luis Castro hefur verið kynntur sem nýr stjóri Al-Nassr í Sádi-Arabíu en hann lætur af störfum hjá Botafogo í Brasilíu til að halda á vit ævintýranna í Mið-Austurlöndum. Hjá Al-Nassr verður hann stjóri Cristiano Ronaldo og Marcelo Brozovic sem kom frá Inter nýlega.

FRÉTTIR06.07.2023, 10:43

Skriniar gerði fimm ára samning við PSG (Staðfest)

Varnarmaðurinn Milan Skriniar hefur gert fimm ára samning við Paris St-Germain en hann kemur á frjálsri sölu frá Inter. Slóvakíski landsliðsmaðurinn lék í fimm ár með Inter og varð ítalskur meistari 2021.

FRÉTTIR05.07.2023, 20:39

Sito mættur til KF (Staðfest)

Jose Sito er genginn til liðs við KF en hann gerir samning við félagið út þetta tímabil.

FRÉTTIR05.07.2023, 18:30

Birkir Þór í Þrótt Vogum (Staðfest)

Þróttur Vogum hefur samið við Birki Þór Guðmundsson sem fær leikheimild með félaginu þegar glugginn opnar þann 18. júlí. Birkir er 26 ára varnar- og miðjumaður sem hefur verið hjá norska D-deildarliðinu Volda frá því að hann gekk í raðir þess í fyrra.

FRÉTTIR05.07.2023, 17:00

Caglar Söyuncu til Atletico (Staðfest)

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Atletico Madrid í sumarglugganum. Bakvörðurinn Javi Galan kom frá Celta Vigo fyrr í þessari viku og nú er tyrkneski landsliðsmiðvörðurinn Caglar Söyuncu mættur. Söyuncu kemur á frjálsri sölu frá Leicester City en enska liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Atletico. Söyuncu er 27 ára og kemur með aukna breidd í vörn Diego Simeone. Leikmaðurinn var í brasi með spiltíma á síðasta tímabili en vill koma ferlinum aftur á almennilegt skrið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.