Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25100 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR28.11.2025, 20:47

Murielle kveður Fram (Staðfest)

Murielle Tiernan hefur staðfest ákvörðun sína um að yfirgefa Fram eftir að hafa verið meðal allra bestu leikmanna liðsins á nýliðinni leiktíð.

FRÉTTIR28.11.2025, 20:00

Pellegrini framlengir við Betis (Staðfest)

Síleski þjálfarinn Manuel Pellegrini er búinn að framlengja samning sinn við Real Betis um eitt ár. Hann gildir núna til sumarsins 2027, eða í eitt og hálft ár.

FRÉTTIR28.11.2025, 18:30

Ray Anthony: Eigum eftir að styrkja okkur betur

Ray Anthony Jónsson nýráðinn þjálfari Grindavíkur svaraði spurningum frá <i>Fótbolta.net</i> eftir að Damir Muminovic og Hjörvar Daði Arnarsson skrifuðu undir samninga við félagið í dag.

FRÉTTIR28.11.2025, 18:00

Hjörvar Daði: Markmiðið er að fara upp

Markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson skrifaði undir samning við Grindavík í dag og svaraði spurningum frá Fótbolta.net eftir undirskriftina.

FRÉTTIR28.11.2025, 16:57

Damir og Hjörvar í Grindavík (Staðfest)

Varnarmaðurinn reynslumikli Damir Muminovic hefur samið við Lengjudeildarlið Grindavíkur. Félagið tilkynnti þetta nú síðdegis en markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson var kynntur við sama tilefni. Damir er 35 ára miðvörður sem tvisvar hefur orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki. Kópavogsfélagið tilkynnti það nýlega að ekki yrði gerður nýr samningur við hann.

FRÉTTIR28.11.2025, 12:28

Vestri krækir í mjög stóran prófíl (Staðfest)

Vestri hefur samið við Senegalann Pape Abou Cisse, frá þessu greinir félagið í dag. Pape er þrítugur að aldri, 1,97 cm á hæð, örvfættur og spilar sem hafsent. Hann býr yfir gríðarlegum styrk og hraða. Hann á 16 landsleiki fyrir Senegal og vann með þeim Afríkukeppnina árið 2022.

FRÉTTIR27.11.2025, 15:02

Fram sækir fyrsta leikmanninn (Staðfest) - Verið í liði ársins þrjú ár í röð

Fram hefur krækt í Brookelynn Paige Entz en hún kemur til félagsins frá Grindavík/Njarðvík. Hún er öflugur sóknarsinnaður leikmaður sem hefur spilað síðustu fjögur tímabil á Íslandi. Hún varð Íslandsmeistari með Val 2022 og lék svo með HK 2023-24. Á síðasta tímabili lék hún svo með Grindavík/Njarðvík og hjálpaði liðinu að fara upp úr Lengjudeildinni. Hún hefur verið í liði ársins í Lengjudeildinni þrjú ár í röð. Hún á að baki 49 leiki í B-deild og hefur í þeim skorað 29 mörk. Hún skoraði eitt mark í ellefu deildarleikjum með Val. Hún er fyrsti leikmaðurinn sem Fram fær í vetur. Anton Ingi Rúnarsson tók við sem þjálfari liðsins í upphafi mánaðar.

FRÉTTIR27.11.2025, 13:26

Aron Jó leystur undan samningi (Staðfest)

Aron Jóhannsson hefur verið leystur undan samningi hjá Val og er honum nú frjálst að semja við annað félag. Valur greinir frá tíðindinum með tilkynningu. Aron, sem er 35 ára sóknarsinnaður miðjumaður, átti eitt ár eftir af samningi sínum við Val. Hann lék framan af á ferlinum sem framherji en spilaði yfirleitt aðeins aftar hjá Val. Hann kom til félagsins frá Lech Poznan haustið 2021 og var því hjá félaginu í fjögur tímabil. Hann lék sem atvinnumaður í rúman áratug, fyrst hjá AGF í Danmörku, svo AZ í Hollandi, var hjá Werder Bremen í Þýskalandi, Hammarby í Svíþjóð og loks Lech Poznan í Póllandi. Hann lék á sínum tíma 10 leiki með U21 landsliði Íslands, 19 A-landsleiki fyrir Bandaríkin og spilaði á HM 2014.

FRÉTTIR27.11.2025, 09:56

Gígja Valgerður kveður Víking og fer til Akureyrar (Staðfest)

Gígja Valgerður Harðardóttir, fyrirliði Víkings, hefur ákveðið að flytja norður yfir heiðar. Hún yfirgefur því Víking. Hún er kærasta Atla Sigurjónssonar sem kvaddi KR í gær. Varnarmaðurinn lék fyrst með sameiginlegu liði HK/Víkings og sneri svo aftur í Víking fyrir tímabilið 2024. Gígja Valgerður er 34 ára og er uppalin hjá Völsungi og varð Íslandsmeistari með Þór/KA árið 2012.

FRÉTTIR26.11.2025, 17:00

Chris Brazell tekur við starfi Hauks Páls hjá Val (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að Christopher Brazell væri orðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá félagiu. Hann var ráðinn til félagsins fyrr á þessu ári og kom þá inn sem afreksþjálfari. Hann verður aðstoðarmaður Hermanns Hreiðarssonar sem var ráðinn til félagsins fyrr í þessum mánuði. Hermann tók við þjálfarastarfinu af Srdjan Tufegdzic og Chris tekur við starfinu af Hauki Páli Sigurðssyni. Chris kom til Vals eftir að hafa verið hjá Gróttu, bæði sem aðstoðarþjálfari og svo aðalþjálfari. Hann er 33 ára Englendingur sem er með UEFA Pro þjálfaragráðuna og er einn yngsti þjálfarinn til að fá þá gráðu.

FRÉTTIR26.11.2025, 14:26

Atli Sigurjóns kveður KR (Staðfest) - Á leið í Þór

Atli Sigurjónsson er farinn frá KR, þetta staðfestir félagið með kveðjufærslu á samfélagsmiðlum í dag. Þar kemur fram að Atli sé að flytja til Akureyrar og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er hann á leið í Þór. Atli, sem er 34 ára, er uppalinn hjá Þór. Hann hélt suður og samdi við KR eftir tímabilið 2011 með Þór. Hann vann deildina tvisvar sinnum með KR og bikarinn tvisvar. Í sumar kom hann við sögu í 17 leikjum og lagði upp fjögur mörk í Bestu deildinni.

FRÉTTIR26.11.2025, 12:30

Aron Snær gerir tveggja ára samning við Víking (Staðfest)

Aron Snær Friðriksson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking en hann kemur til Íslandsmeistaranna frá Njarðvík. Aron er 28 ára markvörður sem hefur spilað með Breiðabliki, Tindastól, Vestra, Fylki, KR og Njarðvík á sínum ferli. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var hann á leið til Þróttar þegar tilboð barst frá Víkingi og er hann nú búinn að skrifa undir samning í Víkinni.

FRÉTTIR26.11.2025, 08:00

Bart Kooistra yfirgefur HK (Staðfest)

HK hefur sent frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að Bart Kooistra muni ekki spila með liðinu næsta sumar. Hann er 24 ára gamall hollenskur framherji sem gekk til liðs við félagið síðasta sumar. Hann kom við sögu í 10 leikjum í Lengjudeildinni og skoraði tvö mörk.

FRÉTTIR25.11.2025, 16:00

Theodór Elmar ekki lengur hjá KR (Staðfest)

Theodór Elmar Bjarnason er ekki lengur aðstoðarþjálfari KR. Hann staðfestir það í samtali við Fótbolta.net í dag. Elmar er uppalinn KR-ingur sem fór ungur að árum út í atvinnumennsku og var í 17 ár erlendis sem atvinnumaður áður en hann sneri aftur heim árið 2021 og spilaði í þrjú og hálft ár með KR áður en hann lagði skóna á hilluna. Hann var aðstoðarmaður Óskars Hrafns Þorvaldssonar á liðnu tímabili og var auk þess með 2. flokkinn.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.