Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   sun 03. október 2021 13:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
PSG ekki með skot á markið í fyrsta tapi liðsins
Hitti ekki á markið
Hitti ekki á markið
Mynd: Getty Images
Rennes 2-0 PSG
1-0 G. Laborde ('45)
2-0 F. Tait ('46)

PSG tapaði gegn Rennes á útivelli í dag. Þetta var fyrsta tap liðsins í deildinni en liðið tapaði síðast í franska ofurbikarnum gegn Lille.

Leiknum lauk með 2-0 sigri Rennes en liðið skoraði í lok fyrri hálfleiks og strax í upphafi þess síðari.

Messi, Neymar, Mbappe og Di Maria voru allir í byrjunarliðinu í dag en liðinu mistókst að reyna á markvörð Rennes í dag. 13 skot að marki en ekkert á rammann.

Liðið er þó áfram á toppi deildarinnar með sex stiga forskot á Lens.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner