Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 18. febrúar 2019 09:27
Magnús Már Einarsson
Boateng ekki með gegn Liverpool
Jerome Boateng.
Jerome Boateng.
Mynd: Getty Images
Jerome Boateng verður ekki með Bayern München gegn Liverpool í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Boateng er að glíma við veikindi og verður eftir heima í Þýskalandi.

Kingsley Coman er í hópnum þrátt fyrir að hafa meiðst smávægilega gegn Augsburg á föstudaginn.

Franck Ribery var að eignast barn og hann mun ferðast sjálfur til Liverpool síðdegis í dag, síðar en aðrir leikmenn Bayern.

Liverpool verður án Virgil van Dijk í leiknum á morgun en hann tekur út leikbann. Þá er Joe Gomez meiddur og ólíklegt er að Dejan Lovren verði með.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner