Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
Gunnar Heiðar: Það þurfti mikla þolinmæði
Dragan: Eigum ekki að fá á okkur svona mark en svona er fótboltinn
Jóhann Kristinn: Nú má Sandra fara að vara sig
Selma: Ætluðum að mæta tvíefldar til leiks
Sandra María: Gaman að fá ný nöfn í þetta
Egill Orri skoðar skóla í Danmörku - „Ætla gera mitt besta hjá Þór þangað til"
Ætlaði allt um koll að keyra á Akureyri - „Stuðningsmennirnir alveg geggjaðir"
„Búinn að breytast í Usain Bolt ef hann er að fara ná boltanum"
Arna Eiríks: Mig langaði eiginlega bara að fara gráta
Stórt kvöld fyrir Berglindi - „Svo vonandi hringir Steini"
Pétur Péturs: Þannig með góða leikmenn þú tekur oft fastar á þeim
Agla María: Ótrúlega góð kaup hjá Breiðabliki
Óli Kristjáns: Eins ógeðslegt og það verður
Kristján svekktur: Ætla ekki að trúa því að þetta komi fyrir aftur
Kristrún Ýr: Skemmti mér vel að spila þennan leik
Guðni Eiríks: Sól og blíða og gleði í FH hjörtum í dag
Heiða eftir stórsigur gegn gamla liðinu: Var ógeðslega erfið ákvörðun
Guðni: Hundfúl að vera á heimavelli og vinna ekki fyrsta leik
Dagur í lífi Eyþórs Wöhler - Sjósund með GEmil og goðsögn heimsótt
Alls ekki byrjunin sem ÍR ætlaði sér - „Eigum að vera sterkari en þetta"
banner
   lau 01. júní 2013 17:32
Matthías Freyr Matthíasson
Lárus Orri: Ég æsi mig aldrei, er alltaf rólegur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er mjög sáttur við að ná stigi hérna. Víkingar eru með gríðarlega öflugt lið og erfitt að koma hingað þannig að við förum fagnandi með stigið heim," sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari KF eftir jafntefli við Víkinga í fyrstu deild karla í knattspyrnu í dag.

,,Í fyrri hálfleik vorum við að verjast ágætleg en sókninar voru ekki nógu góðar, við vorum ekki að halda boltanum nógu vel. Við löguðum það í seinni hálfleik og ef þú telur færin í seinni hálfleik að þá held ég að við höfum haft yfirhöndina þar.

Þessi leikur, leikurinn á móti KA og stigið á móti Leikni sýna okkur það að við getum náð í stig hér og þar en við þurfum 24 stig en ekki bara 5 stig. Þessi 5 stig telja lítið ef þau eru ekki í hópi 24 stiga.

Ég ætla að byrja á því að ná 24 stigum. Það er okkar markmið. Ef við náum því sem ég ætla að vona að við gerum og ég ætla að vona að við náum því sem fyrst að þá setjum við okkur ný markmið.

Ég æsi mig aldrei. Er alltaf rólegur."


Nánar er rætt við Lárus Orra í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner