Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 06. apríl 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Skotmark Liverpool: Get ekki lofað því að ég verði áfram hjá Sporting
Mynd: EPA
Portúgalski þjálfarinn Ruben Amorim segist ekki geta lofað því að hann verði áfram þjálfari Sporting Lisbon á næstu leiktíð, en hann hefur verið orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool síðustu daga.

Xabi Alonso var efstur á blaði hjá Liverpool til að taka við af Jürgen Klopp, en plön Liverpool breyttust þegar Alonso tilkynnti að hann yrði áfram með Bayer Leverkusen.

Amorim tók toppsætið á listanum en hann hefur verið að gera ótrúlega hluti með Sporting síðustu ár.

Enskir fjölmiðlar eru vissir um að hann sé næsti stjóri Liverpool og virðist nú Amorim gefa í skyn að hann gæti verið á förum í sumar.

„Ég get ekki lofað því að ég verði áfram hjá Sporting á næsta tímabili. Ég get ekki sagt það sem Alonso sagði, en við höfum tíma til að ræða framtíð mína og við munum gera það á réttu augnabliki. Núna er einbeiting mín á að vinna titla og síðan kemur hitt í ljós,“ sagði Amorim.
Athugasemdir
banner
banner