Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   fim 20. nóvember 2014 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sonur Pele fær þungan fangelsisdóm
Feðgarnir á góðum degi.
Feðgarnir á góðum degi.
Mynd: globo
Edson Cholbi do Nascimento, betur þekktur sem Edinho, hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir peningaþvott. Ekki er ljóst hversu lengi hann þarf að sitja inni en dómurinn er til 33 ára.

Edinho, sem er sonur hins goðsagnakennda Pele, hefur áður verið handtekinn í tengslum við fíkniefnamál og manndráp af gáleysi og þurft að sitja í fangelsi.

Lögfræðingar Edinho eru furðu lostnir og ætla að áfrýja málinu til brasilíska hættaréttarins.

Pele er orðinn 74 ára gamall og hefur unnið þrjá heimsmeistaratitla með brasilíska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner