Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   þri 23. ágúst 2016 14:33
Magnús Már Einarsson
Chicharito datt í stiga - Frá keppni næstu vikurnar
Javier Hernandez.
Javier Hernandez.
Mynd: Getty Images
Mexíkóski framherjinn Javier 'Chicharito' Hernandez verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst á óvenjulegan hátt.

Chicharito datt niður stiga heima hjá sér og handleggsbrotnaði. Hann fór í kjölfarið í aðgerð í morgun.

Chicharito verður því ekki með Bayer Leverkusen í fyrstu umferð í þýsku Bundesligunni um helgina.

Hinn 28 ára gamli Chicharito kom til Leverkusen frá Manchester United fyrir ári síðan en hann skoraði 17 mörk í Bundesligunni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner