Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 24. desember 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Forgangsatriði hjá Pardew að fá framherja
Pardew vill fá framherja.
Pardew vill fá framherja.
Mynd: Getty Images
Alan Pardew, stjóri Newcastle, segir að það sé forgangsatriði hjá sér að fá nýjan framherja þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Newcastle hefur tapað þremur leikjum í röð eftir að hafa verið á frábæru skriði og skorað einungis eitt mark. Ayoze Perez hefur verið öflugur en Pardew hefur áhyggjur af formi Papiss Cisse, sem hefur skorað sjö mörk en er í meiðsla- og veikindavandræðum.

,,Okkur skortir framherja. Jafnvel þegar Siem de Jong snýr aftur tel ég að okkur vanti einn enn," sagði Pardew.

,,Papiss Cisse - jafnvel þó maður spái ekki í flensunni sem hann er með - er ekki enn 100 prósent. Það sést á spilamennsku hans, og við þurfum að fá annan framherja ef við getum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner