Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   lau 29. ágúst 2015 14:06
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Jafnt hjá Árborg og Vængjum Júpíters
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Árborg 1 - 1 Vængir Júpíters
1-0 Magnús Helgi Sigurðsson ('19)
1-1 Atli Hjaltested ('75, víti)
Rautt spjald: Ingimar Helgi Finnsson, Árborg ('74)

Árborg fékk Vængi Júpíters í heimsókn í fyrri leik liðanna í úrslitakeppni 4. deildar.

Magnús Helgi Sigurðsson kom Árborg yfir í fyrri hálfleik en Vængirnir jöfnuðu með marki úr vítaspyrnu í síðari hálfleik.

Ingimar Helgi Finnsson fékk dæmt rautt spjald og vítaspyrnu á sig þegar hann gerðist brotlegur innan vítateigs og skoraði Atli Hjaltested úr spyrnunni.

Síðari leikur liðanna verður spilaður á Fjölnisvelli á þriðjudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner