Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 12. október 2013 13:45
Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn skoraði þrjú fyrir Vålerenga í æfingaleik
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Framherjinn Viðar Örn Kjartansson skoraði þrjú mörk fyrir norska liðið Vålerenga sem mætti Hauerseter í æfingaleik í dag.

Leiknum lauk með 10-1 sigri Vålerenga en stuðningsmenn liðsins fjölmenntu á leikinn og mættu með blys í stúkuna og mynduðu stemmningu.

Viðar Örn er á reynslu hjá norska liðinu og hefur gengið vel að undanförnu.

Hann er á mála hjá Fylki og skoraði 18 mörk í 25 leikjum í deild og bikar í sumar með þeim appelsínugulu.
Athugasemdir
banner
banner