Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 24. apríl 2019 20:41
Ívan Guðjón Baldursson
England: Wolves skellti Arsenal
Wolves 3 - 1 Arsenal
1-0 Ruben Neves ('28)
2-0 Matt Doherty ('37)
3-0 Diogo Jota ('45)
3-1 Sokratis Papastathopoulos ('80)

Wolves skellti Arsenal er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Arsenal hélt boltanum vel en skapaði afar lítið á meðan Úlfarnir voru stórhættulegir í skyndisóknum sínum og varnarleikur Arsenal hörmulegur.

Ruben Neves kom Úlfunum yfir með marki beint úr aukaspyrnu og tvöfaldaði Matt Doherty forystuna með skallamarki eftir fyrirgjöf sem kom í kjölfar stuttrar hornspyrnu.

Diogo Jota náði að koma þriðja markinu í netið fyrir leikhlé. Það kom eftir slæma sendingu Granit Xhaka fyrir aftan miðju. Jota fékk boltann og labbaði framhjá Henrikh Mkhitaryan og Sokratis Papastathopoulos áður en hann skoraði framhjá Bernd Leno, sem hefði getað gert betur.

Unai Emery breytti um leikkerfi á 60. mínútu en það skilaði ekki sérlega miklu. Lið Arsenal varð stabílla en sóknarleikurinn skánaði ekki. Sokratis náði þó að skora eftir hornspyrnu Xhaka en niðurstaðan sanngjörn, 3-1 fyrir Wolves.

Úlfarnir eru komnir í sjöunda sæti deildarinnar eftir sigurinn. Þetta var annar tapleikur Arsenal í röð og situr liðið áfram í fimmta sæti, einu stigi eftir Chelsea.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Sunderland 24 9 9 6 27 26 +1 36
9 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
10 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
11 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 24 3 6 15 25 47 -22 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner