Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 28. júlí 2019 21:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gummi Magg í Víking Ó. (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Guðmundur Magnússon er kominn til Víkings Ólafsvíkur á láni út tímabilið. Hann kemur frá ÍBV þar sem hann hefur spilað á þessu tímabili.

Við sögðum frá því fyrr í kvöld að hann væri á leið í Víking.

Guðmundur þekkir vel til í Ólafsvík. Hann lék með Víkingi frá 2011 til 2013 og skoraði þá 12 mörk í 48 leikjum.

Þessi 28 ára gamli framherji hefur skorað þrjú mörk í 11 leikjum í deild og bikar með ÍBV í sumar. Pedro Hipolito, fyrrum þjálfari ÍBV, fékk hann til Vestmannaeyja síðasta vetur.

Sá orðrómur hefur verið á kreiki að Gummi myndi yfirgefa ÍBV nú í sumarglugganum. Fyrr í mánuðinum sagði Andri Ólafsson, aðstoðarþjálfari ÍBV, að það væri ekki að fara að gerast, en nú er það ljóst að hann mun spila í Ólafsvíkum seinni hluta sumars.

Hann var ekki í leikmannahópi ÍBV í dag þegar liðið tapaði gegn Grindavík suður með sjó.

Í fyrra skoraði Gummi 18 mörk í 22 leikjum fyrir Fram í Inkasso-deildinni. Það er því ljóst að hann mun reynast mikill styrkur fyrir Ólsara sem sitja í fimmta sæti Inkasso-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner