þri 10. september 2019 22:46
Brynjar Ingi Erluson
Sancho skráði sig í sögubækurnar
Jadon Sancho skorar í kvöld
Jadon Sancho skorar í kvöld
Mynd: EPA
Enski vængmaðurinn Jadon Sancho skráði sig í sögubækurnar í 5-3 sigri enska landsliðsins á Kósóvó í kvöld en hann skoraði tvö mörk í sigrinum.

Sancho, sem er fæddur árið 2000, hefur verið magnaður síðustu tvö tímabil með Borussia Dortmund en hann kom til félagsins frá Manchester City árið 2017.

Hann byrjaði inná í dag en hann skoraði tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks og skráði sig þar með í sögubækurnar.

Sancho er fyrsti leikmaðurinn sem er fæddur á þessari öld til að skora fyrir enska landsliðið.

Þá er hann yngsti leikmaðurinn til að skora tvö mörk í sama leiknum en Wayne Rooney átti metið er hann skoraði tvisvar gegn Króatíu árið 2004.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner