Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 10. nóvember 2019 10:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Aguero: Gefumst aldrei upp
Sergio Aguero.
Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Manchester City fer í heimsókn á Anfield í Liverpool í dag þar sem þeir mæta heimamönnum sem sitja á toppnum með sex stiga forskot á Manchester-liðið.

Sergio Aguero leikmaður Manchester City er tilbúinn í slaginn og ítrekar að hvernig sem fer í dag þá mun City aldrei gefast upp í baráttunni um toppsætið.

„Við gefumst aldrei upp og munum berjast allt til loka tímabilsins, það er minn hugsunarháttur og hjá öllum öðrum sem koma að þessu félagi. Við sýndum á síðasta tímabili hvað í okkur býr, við héldum toppsætinu þrátt fyrir að vera með annað lið á hælunum á okkur," sagði Aguero.

„Við byrjuðum þetta tímabil ekki eins vel og við ætluðum okkur, það eru nokkrir leikir sem fóru alls ekki eins og við vildum. Það þýðir ekkert annað en að horfa fram á veginn núna því það eru stór verkefni framundan. Þetta verður alls ekki auðvelt tímabil og það var ljóst áður en það fór af stað."

„Við þurfum að treysta á sjálfa okkur, gera okkar allra besta. Við gefumst aldrei upp," sagði Aguero.

Flautað verður til leiks á Anfield klukkan 16:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner