Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. nóvember 2019 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola býður Mourinho velkominn: Stórkostlegur stjóri
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur boðið Jose Mourinho velkominn aftur í ensku úrvalsdeildina.

Mourinho var rekinn frá Manchester United fyrir 11 mánuðum síðan, en hann var í vikunni ráðinn til Tottenham eftir brottrekstur Mauricio Pochettino.

Guardiola og Mourinho hafa ekki alltaf verið vinir, en Guardiola hrósaði Mourinho er hann ræddi við fjölmiðlamenn fyrr í dag.

„Hann var í mörg ár hérna hjá mismunandi félögum. Velkominn aftur. Hann er stórkostlegur knattspyrnustjóri. Ég er nokkuð viss um að hann muni standa sig vel," sagði Guardiola.

Mourinho hefur leik með Tottenham gegn West Ham í hádeginum á morgun. Guardiola og hans lærisveinar í Man City eiga leik síðar um daginn gegn Chelsea.

Sjá einnig:
Sagan á bak við samband Mourinho og Guardiola
Athugasemdir
banner
banner