Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 03. desember 2018 22:07
Arnar Helgi Magnússon
Var beðin um að "twerka" þegar hún tók á móti Gullknettinum
Mynd: Getty Images
Eins og greint var frá fyrr í kvöld hlaut Ada Hegerberg Gullknöttinn eða Ballon d'Or í kvennaflokki. Verðlaunin voru veitt í París.

Athygli vakti að þegar Hegerberg tók á móti verðlaununum var hún beðin um að "twerka" uppi á sviði fyrir framan salinn.

Hegerberg virtist hafa takmarkaðan húmor fyrir þessi og svaraði fljótt neitandi. Það var Martin Solveig, franskur plötusnúður sem að var kynnir hátíðarinnar sem átti þessa afar óviðeigandi spurningu.

Samfélagsmiðlar hafa logað eftir atvikið og margir líst óánægju með kynni kvöldsins, Martin Solveig.

Myndavélinni var síðan beint að Kyli­an Mbappé sem hafði einnig lítin húmor fyrir atvikinu.

Myndband af þessu má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner