Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   þri 04. desember 2018 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Systur Ronaldo brjálaðar - „Mafían og peningarnir ráða"
Elma Aveiro, lengst til hægri ásamt unnustu og móður Ronaldo.
Elma Aveiro, lengst til hægri ásamt unnustu og móður Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo var í öðru sæti í kjörinu í Ballon d'Or verðlaununum sem afhent voru í París í gærkvöldi.

Líflegar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum eftir að Luka Modric hafði betur í kjörinu. Það virðast margir vera á þeirri skoðun að Ronaldo hafi átt verðlaunin skilið.

Þar á meðal er Elma Aveiro, systir Ronaldo en hún tjáði sig á samfélagsmiðlum eftir að úrslitin urðu ljós í gærkvöldi.

„Því miður er þetta heimurinn sem að við lifum í. Hann er rotinn og mafían og helvítis peningarnir ráða. Máttur Guðs er meiri en þetta rugl. Guð tekur sinn tíma en honum mistekst ekki," sagði Elma í gærkvöldi.

Hin systir Ronaldo, Katia Aveiro hafði einnig sitt að segja um málið en hún birti mynd af Ronaldo og sagði hann vera bestann fyrir þá sem myndu skilja út á hvað fótbolti myndi ganga.

Hér að neðan má sjá Instagram póst Katiu Aveiro.



Athugasemdir
banner
banner
banner