Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fim 07. mars 2024 22:45
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Núnez getur orðið enn betri
Mynd: EPA
Jürgen Klopp var gríðarlega ánægður með framlag Darwin Núnez í stórsigri Liverpool á útivelli gegn Sparta Prag í dag.

Úrúgvæski framherjinn skoraði tvö glæsileg mörk í 1-5 sigri sem svo gott sem tryggir Liverpool áfram í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

„Darwin átti flott fyrsta tímabil og er búinn að aðlagast leikmannahópinum og enska boltanum. Hann elskar að spila fyrir Liverpool og er ótrúlega gæðamikill leikmaður, það sést langar leiðir," sagði Klopp eftir sigurinn.

„Framherjar geta stundum skorað og stundum ekki. Darwin er ekki ennþá að spila uppá sitt besta, hann getur orðið enn betri."
Athugasemdir
banner
banner
banner