ÍA er svo gott sem búið að staðfesta komu Madison Brooke Schwartzenberger til félagsins á eins árs samningi.
Madison mun að öllum líkindum leika með ÍA í sumar, hún á einungis eftir að fá samþykkt keppnisleyfi í íslenska boltanum.
Madison er fædd 2002 og spilar sem varnarsinnaður miðjumaður. Hún er hávaxin og er sögð vera með góða tæknilega getu og lesskilning.
Hún lék með University of South Florida í háskólaboltanum en var ekki með fast byrjunarliðssæti þar.
ÍA endaði í öðru sæti 2. deildar kvenna í fyrra og spilar því í Lengjudeildinni í sumar.
Athugasemdir