Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   lau 10. nóvember 2018 16:59
Ívan Guðjón Baldursson
England: Rondon er hetjan í Newcastle
Mynd: Getty Images
Newcastle vann sinn annan leik í röð í ensku úrvalsdeildinni er Bournemouth kom í heimsókn í dag.

Salomon Rondon gerði bæði mörk Newcastle í fyrri hálfleik og minnkaði Jefferson Lerma muninn fyrir gestina rétt fyrir leikhlé.

Leikurinn var nokkuð jafn og gerðu heimamenn mjög vel að takmarka færi Bournemouth í síðari hálfleik.

Felipe Anderson bjargaði þá stigi fyrir West Ham á móti Huddersfield og gerði Jose Holebas slíkt hið sama fyrir Watford gegn Southampton.

Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 65 mínúturnar í markalausu jafntefli Burnley og Leicester í fyrsta leiknum á King Power leikvanginum eftir andlát Vichai Srivaddhanaprabha.

Fallbaráttuliðin sem mættu til leiks í dag eru því öll búin að ná sér í stig. Newcastle, Burnley og Southampton eru rétt fyrir ofan fallsvæðið en Huddersfield er áfram í næstneðsta sæti, aðeins einu stigi frá öruggu sæti.

Bournemouth hefði getað jafnað Arsenal á stigum með sigri í dag og Watford er búið að jafna Manchester United á stigum í sjöunda sæti.

Crystal Palace getur orðið fyrsta fallbaráttuliðið til að halda heim án stiga er liðið fær toppbaráttulið Tottenham í heimsókn í síðasta leik dagsins, sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Huddersfield 1 - 1 West Ham
1-0 Alex Pritchard ('6 )
1-1 Felipe Anderson ('74 )

Leicester City 0 - 0 Burnley

Newcastle 2 - 1 Bournemouth
1-0 Salomon Rondon ('7 )
2-0 Salomon Rondon ('39 )
2-1 Jefferson Lerma ('45 )

Southampton 1 - 1 Watford
1-0 Manolo Gabbiadini ('20 )
1-1 Jose Holebas ('82 )
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
11 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
12 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner