Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fös 15. mars 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Atlético tekur á móti Barcelona
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Síðasta umferð spænsku deildarinnar fyrir landsleikjahlé fer fram um helgina og hefst fjörið í kvöld þegar Real Sociedad spilar við Cádiz.

Topplið Real Madrid mætir til leiks á morgun á útivelli gegn Osasuna, en Real er með sjö stiga forystu sem stendur á meðan Osasuna getur blandað sér í baráttu um evrópusæti með sigri.

Spútnik lið Girona situr í öðru sæti og heimsækir Getafe í spennandi slagi, áður en Athletic Bilbao fær Alavés í heimsókn. Athletic getur klifrað yfir Atlético Madrid og komið sér í meistaradeildarsæti með sigri.

Sevilla byrjar sunnudaginn á fallbaráttuslag gegn Celta Vigo og eiga Villarreal og Valencia svo áhugaverðan slag þar á eftir, en fimm stig skilja liðin að í baráttu um evrópusæti.

Real Betis heimsækir þá Rayo Vallecano áður en Atletico Madrid fær Barcelona í heimsókn í stórleik helgarinnar.

Sex stig skilja liðin að í meistaradeildarbaráttunni, þar sem Barca er í þriðja sæti og Atletico í fjórða.

Börsungar eru átta stigum eftir toppliði Real þegar tíu umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

Föstudagur:
20:00 Real Sociedad - Cadiz

Laugardagur:
13:00 Mallorca - Granada CF
15:15 Osasuna - Real Madrid
17:30 Getafe - Girona
20:00 Athletic Bilbao - Alaves

Sunnudagur:
13:00 Sevilla - Celta Vigo
15:15 Las Palmas - Almeria
15:15 Villarreal - Valencia
17:30 Rayo Vallecano - Real Betis
20:00 Atletico Madrid - Barcelona
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 33 26 6 1 71 22 +49 84
2 Girona 33 22 5 6 69 40 +29 71
3 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
4 Atletico Madrid 33 20 4 9 62 39 +23 64
5 Athletic 33 16 10 7 53 33 +20 58
6 Real Sociedad 33 13 12 8 46 35 +11 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Getafe 33 10 13 10 41 45 -4 43
10 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Alaves 33 10 8 15 31 38 -7 38
13 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
14 Las Palmas 33 10 7 16 30 41 -11 37
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 33 7 10 16 37 50 -13 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 33 1 11 21 32 67 -35 14
Athugasemdir
banner
banner