Íslenski landsliðsvarnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson verður ekki í leikmannahópi FC Kaupmannahafnar í dag.
Ragnar hefur dregið sig út úr hópnum og ferðast heim til Íslands vegna fjölskylduaðstæðna, eftir því sem kemur fram á Twitter aðgangi danska félagsins.
Ragnar og kærasta hans eiga von á sínu fyrsta barni saman á næstu dögum
Ragnar hefur ekki komið við sögu í þeim þremur leikjum sem FCK hefur spilað eftir að keppni hófst að nýju í danska boltanum en liðið mætir Álaborg klukkan 18 í dag.
Talið er að Ragnar, sem er 33 ára, yfirgefi danska stórliðið í sumar þegar samningur hans rennur út.

William Bøving erstatter Ragnar Sigurdsson i aftenens trup, da Ragnar rejser hjem til Island på grund af familieforøgelse #fcklive #fckaab pic.twitter.com/sNyqXItJv3
— F.C. København (@FCKobenhavn) June 17, 2020
Athugasemdir