Hamar og Fram mættust í eina leik kvöldsins í 2. deild kvenna og úr varð afar spennandi viðureign.
Harpa Hlíf Guðjónsdóttir skoraði eina mark fyrri hálfleiksins og leiddu Hvergerðingar í leikhlé.
Magðalena Ólafsdóttir jafnaði í upphafi síðari hálfleiks en Íris Sverrisdóttir skoraði á 88. mínútu og hélt hún hefði gert sigurmarkið.
Sú reyndist ekki raunin því Íris fékk tvö gul spjöld á lokamínútunum og jafnaði Sóley Rut Þrastardóttir úr vítaspyrnu.
Fram er á botni deildarinnar, með tvö stig eftir sex umferðir. Hamar er með fjögur stig eftir fimm leiki.
Hamar 2 - 2 Fram
1-0 Harpa Hlíf Guðjónsdóttir ('38)
1-1 Magðalena Ólafsdóttir ('47)
2-1 Íris Sverrisdóttir ('88)
2-2 Sóley Rut Þrastardóttir ('90, víti)
Rautt spjald: Íris Sverrisdóttir
Athugasemdir