Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   fös 29. mars 2024 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Leeds mistókst að klifra í toppsætið
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það var nóg um að vera í ensku Championship deildinni í dag þar sem Leeds United stökk yfir Leicester City í toppbaráttunni en mistókst að taka toppsætið af Ipswich.

Leeds heimsótti Watford í lokaleik kvöldsins og lenti undir í tvígang áður en Mateo Joseph skoraði jöfnunarmark á 85. mínútu til að bjarga stigi.

Crysencio Summerville skoraði fyrra jöfnunarmark Leeds en Emmanuel Dennis kom Watford yfir á ný skömmu fyrir leikhléð og héldu heimamenn forystunni allt þar til á lokakaflanum.

Leeds er einu stigi fyrir ofan Leicester og einu stigi á eftir Ipswich í ótrúlega spennandi toppbaráttu, en Leicester á einn leik til góða.

Southampton er í fjórða sæti eftir jafntefli við Middlesbrough og svo koma West Bromwich Albion og Norwich City í næstu umspilssætum fyrir neðan.

Coventry og Preston North End eru á fínu skriði og ætla að gera atlögu að umspilssætunum. Þau unnu leiki sína í dag gegn Huddersfield og Rotherham.

Blackburn Rovers tapaði þá heimaleik gegn Ipswich Town, en Arnór Sigurðsson var ekki með heimamönnum vegna meiðsla. Blackburn er aðeins þremur stigum frá fallsæti eftir þetta tap, með 42 stig eftir 39 umferðir.

Blackburn 0 - 1 Ipswich Town
0-1 Conor Chaplin ('9 )

Cardiff City 0 - 2 Sunderland
0-1 Adil Aouchiche ('12 , víti)
0-2 Jobe Bellingham ('27 )

Huddersfield 1 - 3 Coventry
0-1 Ellis Simms ('16 )
0-2 Ellis Simms ('22 )
1-2 Rhys Healey ('79 )
1-3 Haji Wright ('90 )

Hull City 0 - 2 Stoke City
0-1 Josh Laurent ('69 )
0-2 Ki-Jana Hoever ('90 )

Norwich 2 - 1 Plymouth
0-1 Morgan Whittaker ('10 )
1-1 Josh Sargent ('67 )
2-1 Ashley Phillips ('74 , sjálfsmark)

Preston NE 3 - 0 Rotherham
1-0 Duane Holmes ('22 )
2-0 Emil Riis Jakobsen ('37 )
3-0 Emil Riis Jakobsen ('42 )

QPR 2 - 1 Birmingham
0-1 Juninho Bacuna ('62 )
1-1 Steve Cook ('65 )
2-1 Jimmy Dunne ('90 )

Sheffield Wed 1 - 1 Swansea
1-0 Bailey Cadamarteri ('41 )
1-1 Jamal Lowe ('76 )

Southampton 1 - 1 Middlesbrough
1-0 Adam Armstrong ('12 )
1-1 Emmanuel Latte Lath ('90 )

Watford 2 - 2 Leeds
1-0 Vakoun Issouf Bayo ('31 )
1-1 Crysencio Summerville ('37 )
2-1 Emmanuel Dennis ('44 )
2-2 Mateo Joseph ('85)
Athugasemdir
banner
banner
banner