Heimir Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum, tekur ákvörðun um framtíð sína í þessari viku en þetta staðfesti hann í viðtali við Heri Simonsen hjá INFO í Færeyjum.
Heimir er á öðru tímabili sínu með HB en hann gerði liðið að meisturum á síðustu leiktíð og þá varð liðið bikarmeistari á þessu tímabili.
Ólafur Jóhannesson er hættur með Val og hefur Heimir verið orðaður við stöðuna en búist er við því að hann taki við liðinu á næstu dögum.
Heimir ræddi við færeyska fjölmiðla eftir 2-2 jafntefli HB gegn B36 í dag en þar segir hann að ákvörðun verði tekin í þessari viku.
„Ég mun ákveða framtíð mína í þessari viku. Ákvörðun mun liggja fyrir á miðvikudag eða fimmtudag," sagði Heimir við Heri Simonsen hjá INFO.
Athugasemdir