Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   fös 05. apríl 2024 21:37
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Blendnar tilfinningar hjá Kára Árna í kvöld
Rotherham er fallið niður í C-deildina
Rotherham er fallið niður í C-deildina
Mynd: Getty Images
Rotherham 0 - 1 Plymouth
0-1 Bali Mumba ('32 )

Rotherham United er fallið niður í C-deildina á Englandi en þetta varð ljóst eftir 1-0 tap liðsins gegn Plymouth í kvöld.

Bali Bumba skoraði eina mark leiksins á 32. mínútu með góðu skoti en sóknarleikur Rotherham var ekki upp á marga fiska, líkt og í síðustu leikjum.

Plymouth kom sér í fín færi undir lokin til að ganga frá leiknum en sætti sig á endanum við að taka öll stigin.

Tap Rotherham þýðir að liðið er fallið niður í C-deildina en liðið er í neðsta sæti með aðeins 23 stig. Plymouth er áfram í baráttu um að halda sér uppi en liðið situr í 19. sæti með 44 stig, fjórum stigum frá fallsæti þegar sex leikir eru eftir.

Fyrrum landsliðsmaðurinn Kári Árnason er eflaust að upplifa blendnar tilfinningar á þessu annars ágæta föstudagskvöldi, en hann lék með bæði Plymouth og Rotherham á atvinnumannaferli sínum.

Kári spilaði með Plymouth frá 2009 til 2011 áður en hann fór til Aberdeen í Skotlandi. Hann hélt síðan aftur í enska boltann árið seinna og samdi þá við Rotherham. Þar lék hann í þrjú ár undir hinum stórskemmtilega þjálfara Steve Evans, en þeir félagarnir fóru saman upp í B-deildina árið 2014.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 45 30 5 10 86 39 +47 95
2 Leeds 45 27 9 9 80 41 +39 90
3 Ipswich Town 44 26 12 6 88 56 +32 90
4 Southampton 45 25 9 11 85 62 +23 84
5 Norwich 45 21 10 14 79 63 +16 73
6 West Brom 45 20 12 13 67 47 +20 72
7 Hull City 45 19 13 13 68 59 +9 70
8 Middlesbrough 45 19 9 17 68 61 +7 66
9 Coventry 44 17 13 14 68 55 +13 64
10 Preston NE 45 18 10 17 56 61 -5 64
11 Bristol City 45 17 11 17 53 47 +6 62
12 Cardiff City 45 19 5 21 51 65 -14 62
13 Swansea 45 15 12 18 59 64 -5 57
14 Watford 45 13 17 15 60 58 +2 56
15 Sunderland 45 16 8 21 52 52 0 56
16 Millwall 45 15 11 19 44 55 -11 56
17 QPR 45 14 11 20 45 57 -12 53
18 Stoke City 45 14 11 20 45 60 -15 53
19 Blackburn 45 13 11 21 58 74 -16 50
20 Sheff Wed 45 14 8 23 42 68 -26 50
21 Plymouth 45 12 12 21 58 70 -12 48
22 Birmingham 45 12 11 22 49 65 -16 47
23 Huddersfield 45 9 18 18 48 75 -27 45
24 Rotherham 45 4 12 29 32 87 -55 24
Athugasemdir
banner
banner
banner