Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fös 05. apríl 2024 19:15
Brynjar Ingi Erluson
Urðaði yfir Mount eftir sigurmark Palmer - „Þú ert heigull“
Mynd: EPA
Enzo Fernandez blæðir bláu en það sást greinilega eftir sigurmark Cole Palmar í 4-3 sigrinum á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Argentínumaðurinn tók hornspyrnuna á Palmer sem skoraði markið seint í uppbótartíma.

Enzo fagnaði eins og markið væri hans og þegar hann gekk aftur inn á völlinn lét hann Mason Mount, leikmann United, heyra það.

Þeir voru liðsfélagar hjá Chelsea á síðustu leiktíð en Mount ákvað að færa sig yfir til United fyrir þetta tímabil.

Enzo var greinilega ekki sáttur við að Mount hafi ákveðið að fara en hann kallaði Mount heigul. Það gerði hann ítrekað er hann var að koma sér aftur í stöðu.

Miðjumaðurinn barði hnefanum í bringu sína og á merki Chelsea áður en hann sagði „Cagon“, sem hægt er að þýða sem heigull á íslensku.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner