Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 06. apríl 2024 21:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Empoli ætlar ekki niður um deild
Mynd: Getty Images
Empoli 3 - 2 Torino
1-0 Nicolo Cambiaghi ('6 )
1-1 Duvan Zapata ('60 )
2-1 Matteo Cancellieri ('74 )
2-2 Duvan Zapata ('90 )
3-2 M'baye Niang('90 )

Empoli er nú þremur stigum fyrir ofan fallsæti eftir að hafa unnið heldur dramatískan 3-2 sigur á Torino í Seríu A í kvöld.

Nicolo Cambiaghi kom heimamönnum á bragðið á 6. mínútu með þrumuskoti fyrir utan teig og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins.

Gestirnir ógnuðu strax í byrjun síðari og gat það ekki endað öðruvísi en með marki. Duvan Zapata stangaði boltanum í netið eftir hornspyrnu á 60. mínútu.

Fjórtán mínútum síðar kom Matteo Cancellieri liði Empoli aftur yfir með föstu skoti vinstra megin úr teignum og í hægra hornið.

Zapata jafnaði aftur metin á fyrstu mínútu í uppbótartíma og aftur var það með skalla. Torino taldi sig hafa bjargað stigi þarna en svo var ekki.

Raoul Bellanova, leikmaður Torino, gerði hræðilega er hann reyndi að skýla boltanum í teig sínum. Liberato Cacace náði að pota boltanum frá Bellanova áður en hann sendig á M'Baye Niang sem skoraði fyrir opnu marki.

Svekkjandi fyrir Torino en rosalega dýrmætt fyrir Empoli sem er nú í 15. sæti með 28 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Torino er í 9. sæti með 44 stig.

Empoli spilaði hörmulega í byrjun tímabilsins og var fast við botninn en hagur liðsins vænkaðist aðeins. Empoli hafði tapað fjórum deildarleikjum í röð áður en það landaði þessum mikilvæga sigri í kvöld.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 28 5 1 81 18 +63 89
2 Milan 34 21 7 6 64 39 +25 70
3 Juventus 34 18 11 5 47 26 +21 65
4 Bologna 34 17 12 5 49 27 +22 63
5 Roma 34 17 8 9 61 41 +20 59
6 Atalanta 33 17 6 10 61 37 +24 57
7 Lazio 34 17 4 13 43 35 +8 55
8 Fiorentina 33 14 8 11 50 37 +13 50
9 Napoli 34 13 11 10 52 43 +9 50
10 Torino 34 11 13 10 31 31 0 46
11 Monza 34 11 11 12 36 44 -8 44
12 Genoa 34 10 12 12 36 40 -4 42
13 Lecce 34 8 12 14 31 49 -18 36
14 Cagliari 34 7 11 16 36 57 -21 32
15 Verona 34 7 10 17 31 45 -14 31
16 Frosinone 34 7 10 17 43 63 -20 31
17 Empoli 34 8 7 19 26 50 -24 31
18 Udinese 34 4 17 13 32 51 -19 29
19 Sassuolo 34 6 8 20 40 70 -30 26
20 Salernitana 34 2 9 23 26 73 -47 15
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner