Tottenham Hotspur hefur áhuga á Englendinginum Kiernan Dewsbury-Hall en hann er miðjumaður Leicester City.
Hall er algjör lykilleikmaður í liði Leicester en félagið er í baráttunni um að komast upp úr Championship deildinni og í ensku úrvalsdeildina.
Ef Leicester mistekst að fara upp um deild þá gæti Tottenham fengið kappann á 25 milljónir punda. Dewsbury-Hall vakti athygli með Leicester þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hefur hann haldið góðri spilamennsku sinni áfram í B-deildinni.
Þetta væri ekki í fyrsta skiptið sem Tottenham tæki lykilleikmann frá Leicester en liðið keypti James Maddison síðasta sumar.
Athugasemdir