Albert Guðmundsson skoraði 12. mark sitt í Seríu A er hann kom Genoa í 2-1 gegn Hellas Verona í dag.
Íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið funheitur á leiktíðinni og er hann sennilega að tryggja sér félagaskipti í stærra félag eftir þetta tímabil.
Hann skoraði tólfta deildarmark sitt í dag er hann skoraði af stuttu færi úr teignum eftir að markvörður Verona hafði varið boltann út í teiginn.
Albert kom þar Genoa í 2-1 og er hann nú 4. markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Paulo Dybala, Duvan Zapata og Victor Osimhen.
Magnað afrek hjá Alberti en markið hans má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér
Athugasemdir