Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 07. apríl 2024 12:07
Haraldur Örn Haraldsson
Byrjunarlið Fram og Vestra: Alex Freyr byrjar í heimkomunni - Eiður Aron byrjar í sínum fyrsta leik fyrir Vestra
Mynd: Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Annar leikur Bestu deildarinnar hefst í dag þegar Fram tekur á móti Vestra klukkan 13:00 í Úlfarsárdal.

Búið er að opinbera byrjunarliðin og má sjá þau hér neðst.


Lestu um leikinn: Fram 2 -  0 Vestri

Rúnar Kristinsson stillir upp frekar nýrri varnarlínu frá því í fyrra en Kennie Chopart, Alex Freyr Elísson, Kyle Mclagan og Þorri Stefán Þorbjörnsson eru allir leikmenn sem gengu til lið svið Fram í þessum félagsmarkaðsglugga.

Davíð Smári hendir einnig sínum nýju mönnum í djúpu laugina, en Eiður Aron Sigurbjörnsson sem nýgenginn er til liðs við Vestra byrjar leikinn í dag. Aðrir nýir leikmenn sem byrja eru Pétur Bjarnason, Karl William Eskelinen og Jeppe Gertesen. Andri Rúnar Bjarnason er ekki í hóp.


Byrjunarlið Fram:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
6. Tryggvi Snær Geirsson
7. Guðmundur Magnússon (f)
9. Kennie Chopart
10. Fred Saraiva
23. Már Ægisson
28. Tiago Fernandes
71. Alex Freyr Elísson
79. Jannik Pohl

Byrjunarlið Vestri:
30. William Eskelinen (m)
0. Morten Ohlsen Hansen
6. Ibrahima Balde
10. Nacho Gil (f)
11. Benedikt V. Warén
19. Pétur Bjarnason
20. Jeppe Gertsen
21. Tarik Ibrahimagic
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson
77. Sergine Fall
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner