Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   sun 07. apríl 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Forseti Dinamo Zagreb keypti auglýsingu í spænsku blaði - „Komdu til okkar!“
Mynd: EPA
Velimir Zajec, forseti króatíska félagsins Dinamo Zagreb, reynir allt til að sannfæra Luka Modric um að snúa aftur heim í sumar.

Modric er uppalinn hjá Zagreb en hélt út fyrir landsteinanna árið 2008.

Hann hefur verið einn af allra bestu miðjumönnum heims síðasta áratuginn eða svo, en hann er núna á síðustu árum ferilsins og líklega farinn að huga að því að snúa aftur heim.

Zagreb vill fá hann aftur til félagsins og gekk forseti þess svo langt að hann keypti auglýsingu í spænska blaðinu Marca þar sem er mynd af treyju Zagreb merktri Modric.

„Komdu til okkar! Það er skynsamlegast, líklega það mest skynsamlegasta í heiminum,“ var síðan skrifað undir treyjuna.

Modric er 38 ára gamall og er að renna út á samningi, en ekki er ljóst hvort hann verði áfram hjá Real Madrid eða ekki. Zagreb er líklega það eina sem kemur til greina ef hann fer frá Madrídingum en hann hefur einnig verið orðaður við félög í Sádi-Arabíu.


Athugasemdir
banner
banner