Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 07. apríl 2024 18:27
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Albert sá um Verona - Politano með sturlað mark í sigri Napoli
Albert heldur áfram að leika sér að Seríu A
Albert heldur áfram að leika sér að Seríu A
Mynd: EPA
Matteo Politano skoraði sennilega mark ársins
Matteo Politano skoraði sennilega mark ársins
Mynd: EPA
Albert Guðmundsson skoraði tólfta deildarmark sitt er hann tryggði Genoa 2-1 sigur á Hellas Verona í Seríu A á Ítalíu í dag. Matteo Politano gerði þá draumamark í 4-2 sigri liðsins á Monza.

Landsliðsmaðurinn skoraði markið á 58. mínútu eftir að markvörður Verona hafði varið boltann út í teiginn. Albert var ekki í vandræðum með að skila boltanum í netið.

Þetta reyndist sigurmark Genoa sem er í 12. sæti með 38 stig í deildinni en Verona í 17. sæti einu stigi frá fallsæti.

Matteo Politano skoraði fallegasta mark tímabilsins í Seríu A og er það eiginlega óumdeilanlegt. Staðan var 1-1 þegar Politano fékk boltann á lofti fyrir utan teig en hann tók viðstöðulaust skot sem hafnaði í samskeytunum fjær. Algerlega óverjandi fyrir markvörð Monza.

Piotr Zielinski, Victor Osimhen og Giacomo Raspadori skoruðu einnig fyrir Napoli sem vann mikilvægan 4-2 sigur á Monza, en Napoli er í 7. sæti með 48 stig, tveimur stigum frá Evrópusæti.



Úrslit og markaskorarar:

Cagliari 2 - 1 Atalanta
0-1 Gianluca Scamacca ('13 )
1-1 Tommaso Augello ('42 )
2-1 Nicolas Viola ('88 )

Frosinone 0 - 0 Bologna

Verona 1 - 2 Genoa
1-0 Federico Bonazzoli ('8 )
1-1 Caleb Ekuban ('45 )
1-2 Albert Gudmundsson ('58 )

Monza 2 - 4 Napoli
1-0 Milan Djuric ('9 )
1-1 Victor Osimhen ('55 )
1-2 Matteo Politano ('57 )
1-3 Piotr Zielinski ('61 )
2-3 Andrea Colpani ('62 )
2-4 Giacomo Raspadori ('69 )
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 28 5 1 81 18 +63 89
2 Milan 34 21 7 6 64 39 +25 70
3 Juventus 34 18 11 5 47 26 +21 65
4 Bologna 34 17 12 5 49 27 +22 63
5 Roma 34 17 8 9 61 41 +20 59
6 Atalanta 33 17 6 10 61 37 +24 57
7 Lazio 34 17 4 13 43 35 +8 55
8 Fiorentina 33 14 8 11 50 37 +13 50
9 Napoli 34 13 11 10 52 43 +9 50
10 Torino 34 11 13 10 31 31 0 46
11 Monza 34 11 11 12 36 44 -8 44
12 Genoa 34 10 12 12 36 40 -4 42
13 Lecce 34 8 12 14 31 49 -18 36
14 Cagliari 34 7 11 16 36 57 -21 32
15 Verona 34 7 10 17 31 45 -14 31
16 Frosinone 34 7 10 17 43 63 -20 31
17 Empoli 34 8 7 19 26 50 -24 31
18 Udinese 34 4 17 13 32 51 -19 29
19 Sassuolo 34 6 8 20 40 70 -30 26
20 Salernitana 34 2 9 23 26 73 -47 15
Athugasemdir
banner
banner
banner