Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur ekki mikla trú á að Manchester United takist að vinna Arsenal ef liðið spilar eins og það gerði gegn Liverpool í dag.
Liverpool er nú í öðru sæti deildarinnar með 71 stig eins og Arsenal, sem er með betri markatölu.
Bítlaborgarliðið nýtti færin illa á Old Trafford í dag og rétt náði að bjarga stigi í lokin, en Liverpool þarf nú að treysta á að Arsenal tapi stigum í síðustu umferðum deildarinnar.
Arsenal á eftir að mæta Aston Villa, Chelsea, Tottenham og Manchester United, en það mætir einmitt United þann 11. maí á Old Trafford. Klopp segist ekki hafa mikla trú á því verkefni ef United spilar eins og það gerði í dag.
„Arsenal er mjög gott fótboltalið. Ef Man Utd spilar eins og það gerði í dag þá mun Arsenal vinna leikinn. Ég er 100 prósent viss um það,“ sagði Klopp.
Athugasemdir