Lionel Messi skoraði í fyrsta leik sínum með Inter Miami í nótt eftir að hafa verið frá í mánuð vegna meiðsla.
Messi hefur verið að glíma við meiðsli undanfarið en hann missti af sex leikjum með Inter Miami og landsliðsverkefni með Argentínu.
Hann snéri aftur á völlinn í nótt er hann kom inn af bekknum í 2-2 jafntefli gegn Colorado Rapids.
Messi kom inn í hálfleik og skoraði tæpum þrettán mínútum síðar en þetta var fjórða deildarmark hans á tímabilinu.
Inter Miami er í 3. sæti Austur-deildarinnar með 12 stig, tveimur stigum frá toppnum.
MESSIIIII
— Major League Soccer (@MLS) April 7, 2024
You just knew he was going to score on his return. ???? pic.twitter.com/2MZnD2TTTV
Athugasemdir