Kyle Walker verður ekki með Manchester City þegar liðið mætir Real Madrid á Spáni í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn.
Walker meiddist í æfingaleik með enska landsliðinu á dögunum en Guardiola hefði viljað hafa hann til að stöðva Vinicius Junior í liði Real Madrid.
„Svona er þetta bara. Madrid hefur misst Courtois, Alaba og Militao á þessari leiktíð. Það er satt að Walker er sá besti til að halda Vinicius í skefjum. Því miður meiddist hann í æfingaleik," sagði Guardiola.
Þá er Nathan Ake einnig á meiðslalistanum en hann hefur ekki spilað síðan um páskana.
Athugasemdir